blogg og annað (lítið annað samt)

Simmsonsþema í gangi ..

25.10.2008 09:59:21 / irisanna

la santa og teambuilder vikan ..

úff .. ég var búin að blogga massíft og svo tókst mér að eyða því ..

jæjja .. byrja bara aftur ... ég ætla s.s að segja í stuttu máli frá því hvað er búið að vera að gerast uppá síðkastið og hvað er framundan ..

jæjja.. í byrjun október ... 3.-10. fórum við í vikuferð til La Santa.. en það er íþróttaaðsetur á lan sarote og er svona ideal staður fyrir íþróttamanninn, toppaðstæður til alls, og hægt að fá afnot af öllu sem maður vill gegn því að framvísa tokein .. þar er frjálsíþróttavöllur, 50m sundlaug, tennisvellir, blakvellir, badminton, körfuboltavöllur, fótboltavöllur og bara haugur af dóti .. og alltaf eitthvað í gangi fyrir almenning.  Maður getur bara farið í svona sportsbooking og séð hvað er í boði hverju sinni ... sjálf var ég bara á prógrammi skólans. . með þríþrautinni og við syntum stundum á morgnana og hjóluðum á daginn ... hjóluðum um alla eyjuna og skoðuðum .. svo kepptu allir í 1/10 af þríþraut .. en hún fól í sér 400m sund, 18km hjól og 4,2km hlaup (ca.) það var voða stemning .. :haha: og það var svona hitt og þetta .. kvöldvaka og svo sáum við sjálf um að kaupa í matinn og elda .. og já .. ég lenti í herbergi með tveimur stelpum sem ég kynntist ágætlega :) var dugleg að elda fyrir þær og svona ... stemning ..

heyrðu já .. svo prófaði ég einu sinnig aerobik fyrir byrjendur ... náði ekki að fyljgja samt .. jóga og paradans og náði ekki heldur að fylgja þar .... een .. það gerir svosem ekki mikið til .. :haha: gaman að prófa .. get allveg ímyndað mér að þetta sé gaman ef maður nær að fylgja .. :D

og já .. núna í síðustu viku var vika sem er köllð team builder vika .. enþar sjá "teambuilderar" skólans um að skipuleggja viku bakpokaferðala fyrir nemendurna þar sem þeim er skipt upp í´7-8 manna hópa sem eiga að vinna saman og ganga saman í viku og leysa ýmis verkefni, bæði einstaklings og hópverkefni .. ég fór meðal annars niður vita .. svona lét mig síga .. og stökk ég í frjálsu falli úr tré .. og svona hitt og þetta og svo sá hópuinn um að leysa ýmsar gátur og svona .. við vorum s.s í skógi og gengum á milli sovna "posta" þar sem teambuilderarnir voru og létu okkur leysa þrautirnar .. ekkert líkamlega erfitt .. bara sprning mikið spurning um að tala saman og hlusta og svona . . og maður lærði allveg ágætlega á þessu ..

í stuttu máli:
Sunnudagur : allir áttu að vera búnir að pakka fyrir 00:00.. ekki vitað hvað við fengjum að sofa mikið.. fengum þó að sofa til morguns..
mánudagur: allir vaktir með brunabjöllu skólans.. og nemendunum (sem voru orðnir fangar) skipað að fara í morgunmat en þar sáum við með hverjum við vorum í hóp og fengum hafragraut og svona skennkt á diskinn eins og í fangelsum .. þvínæst átti minn hópur að fara í þurrkaraherbergið og þar beið okkar kort og blaðagrein sem var falið inní brauði og allt svona í takt við fangastemninguna.. svo áttum við að labba af stað með bakpokana okka og gengum allan daginn eginlega en á leiðinni voru ýmis stopp þar sem löggurnar (teambuilderarnir) ´toku af okkur öll úr og alla síma .. öll veski og nammi og þannig .. og svo vorum við leidd áfram með ýmsum stoppum ..  þangað til við komum að svona skógargististað . .svipað og þórsmörk eða eitthvða.. og þar var borðað og gist ..
þiðjudagur: löggurnar fundu svo mikið af varningi í töskunum um nóttina .. s.s símar og úr og þannig að við vorum öll vakin einhverntíman og send út í skóg í myrkrinu .. og stóðum þar í óvissu í svona tíu mín .. og svorum við send afur inn og máttum sofa ;) heh e.. margir ekkert rosalega hressir með þetta .. en dagurinn var bara svona labb í skóginum með ýmsum þrautum sem ég nenni eiginlega keki að segja frá .. og um kvöldið fengum við þegar við komum aftur að skýlinu biðu okkar dauðir ( og reyndar nokkrir hálf lifandi) fiskar í tunnum og við gerðum okkur bál og afhausuðum fiskana .. skárum þá upp og skelltum þeim í álpappír með gulrótum, lauk, salti og pipar og grilluðum á bálinu .. ekkert smá gott samt og tókst vel .. gaman að segja frá því að ég var ein af þeim sem afhausuðu .. :haha: svo bara kakó og eitthvað svona um kvöldið og í rúmið .. man ekki allveg hvað var gert en þetta var allt sovna í tengslum við að hóparnir áttu að finna kamphróp og allskonar svna handtákn og fleira sem hristi hópinn saman og já .. bara svoana ýmislegt ..
miðvikudagur  mikið um einstaklingsþrautir og ég stökk meðal annars í frjálsu falli ,, synti smá í sjónum, lét mig síga niður vita og stýrði hópnum í einhverju verkefni þar sem þau voru öll með bundið fyrir augun og áttu að klifra í gegnum götótt reipi .. æj.. ég nenni ekki allveg að reyna að lýsa þessu öllu .. en ein af þrautunum var að við fengum segldúk og reipi og áttum að gera tjald í skóginum .. og seinna um kvöldið gistum við s.s í þessu tjaldi eftir að við höfðum borðað beikonbita, lauk, puslubita og kartöflumús í kvöldmatinn . allt eldað á prímus við varðeldinn ..aldrei borðað eins mikið af karteflumús í einni máltíð :haha: en já .. svaf ekkert þessa nótt held ég og leið hrikalega .. svo vorum við vakin um 4 eða eitthvað .. veit það ekki því við vorum náttúrulega ekki með nein úr .. og vorum send af stað aftur .. löbbuðum útum allt bara og fundum bakarí á leiðinni .. komumst að því að klukkan var hálf fimm og bakararnir leyfðu okkur að kaupa súkkulaðibollur og það gladdi marga hópmeðlimi :D en áfram heldum við að einhverri höfn þar sem við fengum morgunmat og svo héldum við bara áfram ..
fimmtudagur kreyndar komin á fimmtudaginn já .. á hofninni var skítakuldi og þar fóru tveir hópmeðlimir í kajakkepni um það hvaða hópur þyrfti að bíða lengur á höfninni eftir að fá að halda áfram . og við unnum eftir mikið basl sem endaði með skæri-blað steinn keppni .. og héldum s.s áfram og á einum staðnum fengum við poka með súkkulaðikexi, hlaupi og súkkulaði í og áttum að halda á honum á næstu stöð án þess að borða neitt .. annars hlytum við verra af .. og við s.s borðuðum hann ekki .. en fengum hann reyndar seinna um daginn .. sem betur fer því annars hefði hver hópmeðlimur misst einns skó ;) já .. þessi dagur endaði í skólanum ... áttum að losa einn fangá .. hópmeðlim sem hafði verið tekinn fastur og falinn í skólanum .. á meðan löggurnar fylgdust með okkur .. og já .. þetta gekka allt saman bara vel nema okkar fangi var ekki í herberginu sem lykillinn okkar gekka að .. en það var bara svona trix til að sjá hvort við myndum bjarga honum eða bara skilja hann eftir því hann væri ekki "okkar" fangi .. að sjálfsögðu björguðum við honum .. og í ljós koma að einhver annar hafði bjargað okkar í staðinn :haha:
já .. seinna kvöldmatur .. einhver karteflukjötkássa .. ekkert voðalega spennó .. svona .. úti í kuldanum .. og síðan fengum við vatnsblöðrur og máttum gríta teambuilderana .. voða stemning hjá þeim sem nenntu að standa í því .. ég var alltaf svo paranoyd að verða veik .. þannig að ég gerði sem minnst bara .. og síðan gistum við öll í íþróttasal skólans og eftir það var svona formlegri dagskrá lokið ..
föstudagur: fengum fínan morgunmat sem allir kunnu að meta :haha: og svo bara sátum við og lögðum mat á hvernig allt hefði gengið og sovna .. hópurinn orðinn þokkalega náinn svona . . svo bara var frí út daginn og við íslendingarnir fórum í feitan nammileiðangur .. ég missti mig massíft .. át bland í poka, heilan 200 g toblerone pakka og fullt af súkkulaðikexi og einhverju .. ekki sniðugt .. þarf að fara að ná í metnaðinn aftur .. hann er ekki allveg nægur þessa dagana..

heyrðu svo í byrjun nóvember er ég að fara til london að hitta pabba .. það verður ekkert smá gaman held ég .. fer 5. nóv á miðvikudegi og verð til 7. ... s.s til föstudags.. missi reyndar úr skólanum allveg massíft ... en vona að það verði í lagi :S .. og svo ætla ég að heimsækja hildigunni í kaupmannahöfn ..

eeenn nenni ekki að blogga meira  .. komin hádegismatur ..

sorry .. náði ekki að gefa upp neitt skemmtilea mynd af þessu .. en ég blogga betur seinna

kv. Íris  Anna ...



 


» 10 hafa sagt sína skoðun

13.09.2008 17:48:14 / irisanna

staffet for livet ofl..

Sælt veri fólkið ...
ákvað að skella inn einu stuttu bloggi um helgina ...
2.kort (nafn á gangi) sá um helgina að þessu sinni, þ.e. undirbúning fyrir matartímana, tiltekt og val á þema svo fátt eitt sé nefnt. Þau völdu að mínum mati gott helgarþema en það var svona Robinson þema (sama og Survivor) ..  Fyrstu ummerki sem ég var vör við voru þau að í kvöldmatnum í gær voru engir gaflar :haha: fólk þurfti bara að redda sér og borða hakk og spahetti með tveimur hnífum :haha: .. tja það voru samt einhverjir sem svindluðu .. svo var reyndar búið að plana að loka fyrir klósett og sturtur svo yfir helgina og búið að stilla upp skóflum sem fólk átti að taka´í skóginn og já .. basically grafa sér skítaholur :haha: .... eeeen ekki margir fylgdu því eftir .. og já .. svo var því logið að mér að kjúklingum yrði sleppt um kvöldmataleytið í dag og við þyrftum að fanga, afhlausa og grilla sjálf á teini .. en ég vissi reyndar að það væri vitleysa .. og sem betur fer var löngu búið að slátra og meira að segja raspa kjúllann sem ég fékk í kvöldmatinn í dag :)..
en já .. svo í gærkvöldi var líka svona lítið þemaball í kreativen sem hófst 21:00 (listaverkstæði, skólastofa sem litlu böllin eru haldin í) þá fengu gangarnir svona hárbönd í mism. litum eins og survivor fólkið er með ... og allir (flestir) voru klæddir eftir þema .. þ.e lítið klæddir ;)  

já og svo í dag eru flestir að taka þátt í krabbameinsverkefni sem heitir staffet for livet .. en það er fyrir almenning og snýst um að skipa lið og hvert lið þarf að hafa einn á hreyfingu í heilan sólarhring. .hjá okkur fær s.s hver og einn 3-4 30 mínútna vaktir og þeir sem vilja geta gist í tjöldum og svona .. voða stemning í kringum þetta, fólk með andlitsmáningu og búið að baka og svona .. en það er nóg að ganga . en sumir skokka líka .. og já .. þetta á s.s að vera svona táknrækning þess hve krabbameinssjúklingar þurfa stöðugt að vera að berjast ... mjög gott framtak finnst mér ...

sjálf er ég öll að þokast í átt að bata .. þótt ég sé ennþá á því stigi að vera mjööög paronoyd að veikjast aftur og finn svona svolítið fyrir því að hafa verið veik, skrítin tilfinning í lungunum stundum... en ég er mjööög passasöm og reyni bara að gera allt eftir bókinni og þá kemur þetta á endanum ... byrjuð að taka þátt í íþróttunum e-ð og svona .. það verður voða gaman að komast í gang aftur ..

en núna er ég þreytt. . og ætla að slaka smá á áður en ég fer niðurettir í útilegusteminguna .. ætla samt ekki að gista niðurfrá held ég .. langar að sofa í rúminu mínu bara .. ekki allveg í útilegugírnum þessa dagana ..

Pæling: ég held að manneskjan sé hönnuð og innrætt þannig að hún vill alltaf það sem hún getur ekki fengið .. og oftast þegar hún getur fengið það .. þá er það ekki eins spennandi.. vitiði hvað ég á við ? .. af hverju er þetta svona? .. bara  smá pæling svona í lokin ..

later +
Íris Anna

» 11 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 11:32:45 / irisanna

Styttra blogg...

jæjja .. hef ekki mikinn tíma til að blogga.. en ætla að hafa þetta svona punktablogg . .það sem ég man akkúrat núna ..

ég er hægt og rólega að skána held ég . . finn smá fyrir lungunum og er orkulítil á köflum en að öðru leyti bara up and going .. ætla að prófa að skokk labba á eftir og sjá hvort það geri nokkuð út af við mig .. en er komin með nýja taktík og er bara að segja við sjálfa mig voða mikið að það sé ekkert að og að mér líði vel .. og þá líður mér án gríns aðeins betur .. og það að hugsa jákvætt það hjálpar allveg slatta .. maður verður bara að trúa því 100% .. hljómar geðveikislega kannski .. enda var ég við það að verða geðveik uppá herbergi um daginn .. en já .. og ég er líka að reyna að læra að slaaaka á .. og það gegnur .. já svona upp og niður ;) .. stelpurnar eru allveg með mér í þessu .. segja mér að slaka þegar ég gleymi mér og svona .. voða fínt ..

pabbi kíkti í heimsókn í gær .. ég bakaði köku og fékk harðfisk og föt að heiman.. mjög skemmtilegur dagur og ekkert smá gaman að fá kappann í heimsókn.. hann var bara í nokkra klukkutíma svo við bara gengum um skólann og ég sýndi honum herlegheitin og honum fannst þetta svona eins og að vera aftur kominn í barnaskólann á húsavík.. allt frekar gamaldags og svona rykugt en aðstæður góðar sérstaklega utanhúss..  

margir íslendingar slappir og veikir þessa dagana og reyndar aðrir líka ..

Eg er að gera verkefni um Dyrberg/Kern, danska skartgripahönnuði .. veit ekki mikið um þá en þeir eru víst voða stórt númer ..

sá geggjaða mynd um daginn Shawshank redemption eða eitthvað álíka .. kom verulega á óvart .. en það var s.s það sem nokkrar af íslensku stelpunum gerðum þegar þemapartýið var á laugardaginn ... ég er ekkert búin að vera að mingla neitt mikið og veit ekkert slúður úr öllum þessum partýum .. mest búin aðvera að láta sjá mig smá .. og fara svo upp að sofa .. enda hef ég ekki verið allveg fersk
uuuuu... æj ég veit ekkert hvað ég á að segja eiginlega .. það krefjast allar sögur svo mikilla útskýringa að ég eiginlega legg ekki í það núna..

held ég sé að verða of sein í tíma .. en það kemur meira síðar ..



» 2 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 08:20:13 / irisanna

veik...ef þið nennnið ekki að lesa niðurdrepandi nöldur þá skuluði ekki lesa þetta blogg ..

Djöööfull ætla þessi veikindi engan endi að taka...  þróunin er búin að vera þessi seinustu vikuna.. fór til læknis á þriðjudaginn í seinustu viku því ég var ennþá svolítið slöpp og svona og var búin með lyfin.. hann tók blóðprufu og hlustaði á lungun og sagði að sýkingin væri farin og það væri í lagi að byrja að æfa hægt og rólega .. :D og ég var mjöööög glöð og fór í göngutúr á mánudeginum meðan hinir hlupu :/ erfitt, synti smá á þriðjudeginum, skokkaði mjöööög léétt (nánast labb) / labbaði .. þorði ekki að reyna á mig þannig að ég fór bara mjjöög hægt .. svo á fimmtudeginnum hjólaði ég .. að vísu allveg 30 km .. en mér fannst það ekkert erfitt og fannst ég ekki vera að reyna á mig .. og svo á föstudeginum skokkaði ég mjög létt 1500m og hjólaði og skokkaði aftur og hjólaði .. e-ð prógramm með þríþrautinni sem ég er í .. og ég veit ekkert hvað ég má gera mikið því mér fannst ég ekki vera að reyna þannig a mig og leið allveg vel þegar ég var að því.. en svo seinni partinn þá var ég gjörsamlega dauð í líkamanum og fór bara heim í staðinn fyrir að rölta í bænum með krökkunum eins og ég hafði planað ... mér finnst é búin að vera a ðgera alllt eftir bókinni til að ná mér .. legg mig alltaf þegar ég hef tíma til og bara svona þessir ltlu hlutir .. er alltaf búin að fara snemma að sofa og hvíla mig í tíma og ótíma og það er ekkert smá erfitt hérna því það er einhvernveginn alltaf eitthvað í gangi og ég er ekki búin að ná að gera næstum því allt sem mig langar og finnst ég engan veginn búin að ná að sína mitt rétta andlit hérna .. sem er leiðinlegt og erfitt að geta ekki gert og að geta ekki æft .. þó svo að manni líði alltílagi .. mjög erfitt að vera einn á herberginu einhvernveginn og maður pælir svo mikið af óþarfa pælingum og svona... en svo á laugardagskvöldinu var partý .. eins og flestöll laugardagskvöld og ég var mikið að dansa en mér fannst ég allveg hafa orku í það ..en svo náði ég engan veginn að sofna ..veit ekki af hverju en kannski vegna þess að ´ge var flakkandi á milli herbergja því room-mate-inn minn var með gest og ég ákvað að gefa þeim næði .. hún var reyndar líka með annan gest fyrir tveim helgum og þá fórnaði ég líka rúminu mínu .. ég held ég sé mjög góður roommate :) og fór til annarra en það sofnuðu allir á undan og ég gat ekki sofið fyrir hrotunum í þeim svo ég fór í annað rúm þar sem einhver hafði farið heim yfir helgi .. en þar var grænlendingur sem hætti ekki að tala og var að reyna að æfa dönskuna á mér .. hann s.s hafði sofið svo mikið um daginn og gat engan veginn sofið sagði hann og þá var kl. orðin ábyggilega svona 5 og ég vildi ekkertr meira en að ná að sofna .. og hann hélt áfram á arfaslakri dönsku að segja mér að hann hafi komið til dk 7. ágúst og verið hjá systur sinni í köben og spurði mig ótal óóþarfa spurninga: af hverju ég kom til dk, hvenær, hvort ég ætti kærasta, og blabla og þetta var svona samtal þar sem ég fann að hann skildi ekki það sem ég sagði og ég skildi ekki heldur allt sem hann var að segja.. :/ ekki stuð .... og ég var samt alltaf að segja honum að ég vildi mjög gjarnan bara fá að reyna að sofna .. en hann var ekki að skilja dönskuna mína nógu vel greinilega .. og þegar það var búin að vera þogn í smá stund .. þá kom ný spurning.. svo ég fór bara á endanum og endaði í herbergi hjá gísla sem er einn íslendinganna .. hann hraut ekkert svo hátt og room-mate-inn hans var ekki að nota rúmið sitt.. en var samt ekki að ná að sofna ..en það tókst að lokum ég var bara svo stressuð yfir því að geta ekki sofið því áður en ég varð veik þá átti ég mjög erfitt með svefna og e-ð svona vesen .. en  svo s.s á sunnudaginn þá var ég aftur orðin e-ð skrítin í lungunum .. samt ekki skrítin öndunarhljóð en svona skrítið að anda og fann einhvernveginn fyrir lungunum og líkamin allur slappur .. erfitt að lýsa þessu. . þannig að ég var bara mjög róleg .. og gerði s.s lítið sem ekkert um helgina, átti afmæi á laugardaginn og borðaði fullta af kökum og svona .... örlítið strandblak og e-ð svona .. annars bara afslöppun og í gær gerði ég ekkert, var allveg frekar slöpp og sleppti hlaupinu  (ég er s.s í hlaupi og þríþraut í skólanum svo það er erfitt að byrja e-ð rólega og ég veit engan veginn hversu mikið ég má reyna á mig og e-ð svona) bara reyni að sleppa öllu sem þreytir líkamann .. þó svo að ég geti það líkamlega þá er ég bara að reyna að vera úúúber varkhá .. því ég nenni ekki að horfa til baka og sjá eftir einhverju .. langar bara a ðgera allt rétt .. en það er erfitt þar sem ég veit ekki hvort það sé betra að vera allveg rúmlíggjandi eða reyna að gera eins og maður getur ..  en það virðist amk ekki vera að skila sér nægilega vel .. þetta er eins og þegar ég fékk lungnabólguna forðum þá var hún allveg endalaust lengi að fara því ég fór alltaf of snemma af stað og þessvegna er ég búin að vera óóógeeeeeðslega varkhár núna .. en það er ekki að virka .. veit ekkert hvað ég á að gera .. líður bara ekki vel þegar ég hugsa til þess að ég gæti verið svona allan tíman en mig langar mest  bara að komast smá í burtu því það er ótrúlega erfitt að vera veikur hérna .. 

annað .. ég er búin að vera að fá þvííílíkt skrítna drauma undanfarið, bæði þegar ég hvíli mig á daginn og um næturnar.. mér dreymir allan fjandann og ég er ekki vön að muna drauma ... en allavega eitt skiptið dreymdi mig að helga margrét og stefanía væru komnar til .dk ..hitti þær bara í sundi og var e-ð veik í draumnum og vinkaði þeim bara og e-ð svona og svo hugsaði ég að þær vildu ábyggilega hitta mig meira . en það voru einhverjar aðrar stelpur með þeim og svo mætti ég kenkaranum og ég átti að vera á herverginu veik og e-ð svona . .æj þetta var hálfgeðr steypa bara  . og þær voru allt öðruvísi en í alvöru og e-ð  svona .. og svo dreymdi mig í gær um daginn að ég hafi vakknað hágrátandi og með þvílíka hellu og heyrði ekkert og leið bara mjög illa og svo kom room-mate-inn minn og einhverjir fleiri inn og ég var bara að reyna að tala við þau og faðma einhvern og reyna að tjá mig en ég náði ekki að tala aog heyrði eigninlega ekkert ekkert .. held ég hafi verið með hita í svefni þarna .. amk leið mér ekkert vel .. svo spurði ég roommatinn og hún sagði að þetta hefði ekki gerst,, svo dreymdi mig að aðalgeir bróðir minn(8ára) hefði týnst .. og svo fannst hann einhverntíman löngu seinna .. og ég spurði mömmu hvar hann hefði fundist þá sagði hún að hann hefði verið í fótboltaferðalagi með fjölnisstrákunum í svíþjóð og að þeir höfðu komið við í íkea í hafnafirði á leiðinni heim .. og hann hefði gleymst í íkea .. og ég bauðst til að ná í hann og þá sagði mamma aðhún hefði látið senda hann heim í pósti! ég fatta þetta engan veginn .. og það er fullt af svona draumum sem er erfitt að útskýra .. dreymdi líka að ég hefði borðað einhver svona corny súkkulaðistykki og fann bragðið og allt .. og svo þegar ég vaknaði þá var ekkert farið úr pakkanum .. og svona mætti lengi telja .. og já .. svo í nótt dreymdi mig að ég væri á einhverri videóleigu í grafarholti .. nýtt fyrirbæri . risa hús sem sýndi myndir ..t.d. james bond og svona .. með ókliptum atriðum .. og pabbi fór og leigði einhverja mynd og ég fór með .. og það var meira svona eins og ég væri að elta hann .. og svo var sá sem var á undan mér í röðinni að fara að leigja mynd og vann einhverja mynd veit ekki af hverju .. en hann gat valið um CSI og einhvað rugl sem meikaði engan sens .. og hann valdi CSI.. og ég spurði hvort ég mætti ekki líka vinna mynd því það var ein eftir (þarna rugl myndin sem er engan veginn til í raunveruleikanum).. og jú þau létu mig fá myndina og svo þegar ég var á leiðinni út úr búðinni þá höfðu þau skipt um skoðun því það var e-ð annað nr. (svona nr. hvar maður er í röðinni) sem átti að vinna þessa mynd og vildu fá hana til baka .. og ætluðu að láta mig hafa einhverja disney barnamynd sem var búin að vera lengi á toppi vinsældarlistans (en er engan veginn til í alvörunni ..minnir samt að það hafi verið e-ð svona jólaævintýri plútó eða eitthvað) í staðinn en ég hélt nú ekki og fór bara út .. og man ekki meira .. en ég er s.s búin að sofa allveg semí illa og dreyma fullt af svona shitti sem meikar engan sens.. veit ekki af hverju ég er að blogga um það .. en ég hef EKKERT betra að gera .. er bara ein uppá herbergi og allir hinir að gera e-ð .. s.s bara í dönsku eða einhverjum tímum .. 

og já .. svo er ég mjög emotional þegar ég er veik ... erftt að lýsa því en það þarf ekkert til þess að ég fari að gráta og e-ð svona .. sem er engan veginn líkt mér .. en það er þannig núna .. og svo á ég það til að borða mikið súkkulaði því þá líður mér betur í smá stund .. ég er að glugga yfir bloggið og ég hljóma virkilega eins og ég sé að verða geðveik .. 

en allavega .. ef ég á að segja frá skólanum smá .. svona fyrst ég hef ekkert betra að gera þá er dagsráin þannig að á mánudögum er vakknað .. sumir fara í morgunbað í sjónum fyrir morgunmat en ég hef aldrei prófað útaf veikindunum.. já og það er alltaf morgunmatur frá 7:15-7:50 virka daga og sva er morgunsamkoma þar sem er sungið lag í byrjun og enda og talaðu um ýmis málefni þess á milli .. síðast var það dönsk pólitík. en morgunsamkomur eru bara á mán og fimmtudögum kl 8. og næsta fimmtudag eigum við íslendingarnir að flytja fyrirlestur um ísland. . . svo er fællesidræt . þar sem allir í skólanum stunda sameiginlegar íþróttir oftase meirs svona þrautir og leikir.. svo er smá pása .. alltaf hægt að fá gulrætur og brauð þá .. og svo kl. 10:15 er debatfag .. þar er ég í dönsku .. það er alltílagi .. en ég held maður myndi læra meira á því að umgangast danina .. en maður er s.s ekki komin með 100% skilning ennþá svo maður er ekki allveg nógu fær til að vera í öðrum tímum sem eru alfarið á dönsku .. eins og það var hægt að velj sundhed og einhvern  svona styrkjandi tíma þar sem maður kynnist sjálfums ér og eitthvað svona mun meira spennandi en dönsku .. en það verður valið aftur eftir tvo mánuði og þá getum við vonandi valið eð meira spennandi .. en já .. svo er hádegismatur frá kl. 12-12:40 virka daga .. en ef ég held áfram með mánudaginn þá er 13:30 bifag .. þar sem ég valdi hlaup .. en hef því miður lítið sem ekkert getað verið með .. en það snýst um að hlaupa og æfa annaðhvort fyrir hálft eða heilt maraþon og miðað við ástandið á ,mer núna þá næ ég ekki að gera neitt en ég held að ég muni frekar reyna við háflt en heilt því heila er engan veginn að fara að gerast þar sem þetta er 1. okt og ég efast um að ég verði ´buin að ná mér fullkomlega fyrir þann tíma.. æj ég veit það ekki .. er bara hrædd um að ég muni fara of geyst af stað og verða veik bara massíft lengi .. eins og síðast .. en jæjja.. svo er frugt og bröd aftur um 15:30 og svo hreingerning 17:15-17:45.. og já .. svo kvöldmatur alltaf vikrka daga 17:45-18:30. dagskráin er svipuð á þriðjudögum en það er danska... svo kennarafundur/hreingerning, svo matur .. svo specialefag ... þríþrautin hjá mér .. sumir í blaki,aðrir í tennis og svo frv.. og svo hreingerning aftur og kvöldmatur .. svo er fællesaften á þriðjudagskvöldum þar sem allir hittast og gera eð saman .. og miðvikudagnan er interæssefag í fyrsta tíma .. þar sem´eg er í dansk kúltúr .. þar erum við að fara um bæinn og kynnast danskri hönnun og mennignu og kerfinu líka  .. soðuðum síðast fatahönnun og húsgögn og þar áður skart .. en þetta fer því miður svolítið inn um annað eyrað og útum hitt .. samt reyni ég svona að muna það helsta og punkta niður en það er erfitt .. sérstaklega þar sem éger búin að vera semí slöpp allan tíman og erfitt með að halda einbeitningu... og já .. svo er sang/dans 9:45-10:45 og svo bogruppemode 11-12 .. skólafundur eftir hádegismat og svo bifagið (hlaup) já .. svo hreingerning ... sem er alla daga frá 17:15-17:45.. er ekki allveg að nenna að útsýra þetta vel en fimmtudaga er morgunsamkoma, danska, fyrirlestur um ýmis málefni, hádegismatur, þríþraut, hreingerning, kvöldmatur .. og á föstudögum er fysisk trænining hjá öllur eftir morgunamat en það er svona erfið æfing eins oghlaup eða þrek  en við sem erum í þríþarutinni förum ekki í þá því við erum þegar að gerasvo mikið og hún er einmitt í tímanum á eftir.. en það er s.s allveg semí hardcore prógramm ..en ég er bara því miður ekki búin að geta tekið þátt.. óþolandi .. en já .. svo er það bara hádegismatur , dansk kúltúr og hreingerngin .. og kvöldmatur .. þetta ersvona skipulagða dagsráin en svo er alltaf eitthvað að gerast þess á milli .. og á kvöldin og svona.. fólk fer í ýmsar íþróttir og horfir á video saman .. spilar ,, spjallar,, horfir á sjónvarp,, fer og fær sér ís við höfnina,, bíó og bara allt .. en ég er s.s búin að liggja og gera ekkert í flest skiptin .. fer stindum í spóluchill og e-ð .. bara reyni að fara vel með mig .. en ég hugsa bara að þá verður ennþá meira gaman þegar ég get farið að taka virkilegan þátt í öllu .. en það virðist svo far off eð þar sem ég er ennþá veik núna.. og mér finnst þetta aldrei ætla að fara .. en já ég þarf bara að halda áfram að hlusta á líkamann og gera það rétta en það er erfitt.. ég er uppá herbergi núna ..og má ekkert fara út .. helga er svo sæt að færa mér mat en þegar maður er veikur er s.s ætlast til að maður sé bara á herberginu sínu .. ákvað að prófa það í dag.. er búin að vera að gera það sem ég get eins og dönskutima og sovna ..en held að algjör hvíld virki betur .. svo það er mitt plan núna .. og svo kannski kíkja enn einusinni til læknisins .. það er bara svo leim að fara allltaf til læknis því mér líður eins og það sé ekkert að mér sem er greinalnlegt .. bara massíf þreytia og svona almenn vanlíðan .. æj ég veit það ekki ... 

Ég held allavega að það sé sorglegt að sitja lengur og blogga svo ég held ég fari bara að finna mér eitthvað annað til að drepa tímann .. en endilega kommentið ef þið hafið eihverjar spurningar og eitthvað svona. .og ég mun svara  eftir bestu getu ... 

annars bara vona ég að allir hafi það sem allra best
Íris Anna    
   

» 4 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 08:58:50 / irisanna

lítið að frétta síðan síðast..

Dönskukennslan er ekki allveg að gera góða hluti ... erum svolítið að læra málfræði og tölur og eitthvað svona .. en við þyrftum frekar að vera að tala dönskuna og heyra hana .. en hvað um það .. gefum þessu sjens ..

í gær fórum við með dansk kultur í  einhverja skartgripabúð og fengum fræðslu um danska hönnun .. voða lítið samt .. en Georg Jensen er semsagt stærsta númerið í dag.. ekkert smá flott .. en líka rááán dýrt ..

Ég er búin að vera mjöög einmanna þessa dagana .. voða anti-social og virkilega að gera allt sem ég get til að ná mér sem fyrst .. sem er frekar leiðinlegt .. en ég er s.s búin að kynnast lampanum fyrir ofan rúmið mitt einnna best .. kallann John (long-john) og er búin að eiða ófáum klukkutímum liggjandi í rúminu að horfa á hann ..

En ég get bara ekki beðið eftir að ná mér svo ég geti farið að taka þátt í einhverjum íþróttum .. sökkar að geta ekkert gert .. og það er svo mikið máttleysi sem fylgir svona lungnasýkingum .. en já . . ég held ég sé á réttri leið . verð bara að vera þolinmóð .. og byrja mjöög hægt þega´r ég byrja að æfa..

Fór smá í búð í gær og keypti handklæði og þvottaefni, þæginlega skó og buxur og eitthvað svona .. komst að því að ég tók alls ekki allt sem ég þurfti með en ég held að þetta reddist allveg..

æj é ghef eiginlegea voða lítið að segja .. gærkvöldið: íslensku krakkarnir fóru í bæjarrölt og e-ð svona .. og svo voru einhverjir sem fóru í bíó .. aðrir í sundlaugina og ennaðrir é badminton.. bara svona svo þið fáið einhverja hugmynd um hvernig stemningin er hérna . . en það er allvega eins og það sé alltaf eitthvað í gangi :) .. ég fór s.s bara í Pejsen . sem er svona sjónvarpsherbergi með fótboltaspili og e-u dóti .. og sat þar og lærði að spila baccomon .. það var bara ferlega næs.. ég missti samt af smá drama því einn íslensku ´strákanna fékk víst gat á hausinn og fór uppá spítala og lét sauma sig saman og e-ð og hinn meiddi sig smá í síðunni .. æj einhver gannislagur í myrkri held ég .. (óstaðfastar heimildir) .. en já .. ég á s.s að vera á fyrirlestri núna .. en við international studentarnir sleppum við það því það vantar túlk .. en já .. 

ég reyni að láta heyra í´mér við tækifæri þótt það sé ekki merkilegra en þetta ;) en eitt varðandi matinn
: það er merkilegt hvað danirnr setja ofan á danska rúgbrauðið sitt.. það er bókstaflega allt ..fiskibollur, eð rautt dæmi,, egg og majónes .. og aðallega bara allur matur settur á rúgbrauð .. frekar sérkennilegt finnst manni ..  en já . nýjasta æðið er s.s fínt hrökkbrauð með súkkulaðiflöguáleggi .. 

þetta var frekar ómerkilegt blogg en ég hlakka til að blogga þegar ég hef frá einhverju að segja.. 

Íris Danmerkurfari ..  

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 19:57:10 / irisanna

Fyrstu dagarnir í Sönderborg

ég veit ekki hvar ég á að byrja ..

Ég ætla byrja á því leiðinlega.. ég er s.s ennþá veik. Fór til læknis hérna í danmörku í gær af því að ég var komin með slæma hálsbólgu og smá hita ofan í berkjubólguna og læknirinn mælti með því að ég kláraði sýklalyfin sem ég er á og hvíldi fram í næstu viku :( það er mjöööög leiðinlegt .. sérstaklega þar sem veikt fólk þarf að dúsa á herbergjunum sínum allan daginn og missa af öllu fjörinu .. og meira að segja láta vini sína færa sér mat upp ... en ég fór líka í blóðprufu og sýkingin var sem betur fer ekki komin í blóðið svo vonandi lagast ég smám saman á næstu dögum .. það er bara svo erfitt að vera skynsamur þegar maður getur verið í íþróttum með skemmtilegu fólki allan daginn ! .. en ég hlakka ekkert smá til þess að fara að geta tekið þátt í öllu af fullum krafti ..

Við helga fórum samferða til sönderborg og mættum aðeins of seint þar sem við þurftum að bíða í svolítið í Dk eftir lest til sonderborg. en þegar við komum í skólann var bara verið að sýna fólki aðstæður og eitthvað svona .. við erum 13 íslendingar . .sem er frekar mikið og svo nokkrir aðrir international students og svo bara fullt af skemmtlegum dönum .. 115 nemendur alls.

Fimmtudagurinn var þéttbókaður .. fullt af svona "þjöppum hópnum saman á 2 dögum" leikjum og þrautum þar sem samvinna og svoleiðis var í fyrirrúmi .. svo var dregið um hádegisverðarborð og fólki alltaf skipt í nýja hópa svo að maður kynnist sem flestum .. allir eru voðalega viðkunnalegir en það væri samt mun skemmtlegra að geta tjáð sig betur og skilið dönskuna .. en það er vonandi eitthvað sem kemur bara með tímanum ...

Föstudagurinn var valdagur .. þá völdum við fögin sem við ætlum að vera í fyrstu tvo mánuðina og svo verður aftur valið þá fyrir næstu tvo mánuði .. ég valdi þríþraut, (hlaup,hjól,sund) í aðalval .. og svo hlaup í aukafag .. svo var það danska í debatfag og dönsk menning í interessefag .. svoldið nördalega valið en mig langar svoldið að læra um hvernig danska kerfið virkar og þau mæltu með þessum áfanga fyrir international studentana .. þetta verður bara gaman held ég :D ...
það er einn ágætur hlaupari hérna .. hann er held ég 34 ára og hefur hlaupið nokkur maraþon og svona .. hann á að ég held 36,40 í tíu km .. en annars er hann ekki mikið fyrir að hlaupa .. hann segist ekki hafa sérstaklega gaman af því að hlaupa en ef hann er að æfa fyrir einhverja keppni eða eitthvað að þá sé það fínt ..
en það kemur í ljós bara .. get örugglega platað hann á intervall æfingar enhverntíman ..

en ég er s.s bara uppá herbergi núna .. .búin að smita herbergisfélagann :S og við erum s.s bara í volæði á meðan allir hinir eru úti í einvherju megaskemmtilegu prógrammi .. æj . . ég hlakka ekkert smá til að taka þátt í öllu .. en þetta á allveg eftir að taka smá tímaheld ég .. því maður verður svo máttlaus og ómögulegur eftir svona lungnaveikindi ..

En ég ætla ekki að hafa þetta neitt mikið lengra að sinni .. bara fara að hvíla mig svo ég getir geri mætt í danskan kúltúr á morgun .. en já .. ég verð vonandi ágætlega dugleg að láta heyra í mér .. og endilega kommentið og komið með fréttir af íslandinu góða..

kv. Íris í paradís

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 12:50:58 / irisanna

Veikindi og vesen ... :,(

Hef ekki mikinn tíma til að blogga akkúrat núna .. er á lestarstöð í danmörku .. en mig langaði bara að deila með ykkur sorgum mínum .. en ég fór s.s til læknis í gær eftir að hafa verið semí skrítin í lungum og líðan í 1-2 daga .. og viti menn .. læknirinn sagði að ég væri með berkjubólgu (brónkítis) og setti mig á síklalyf .. svo mælti hann ekki með því að ég keppti um helgina :,( .. ekkert smá leiðinlegt ! .. hefði verið geggjað og mér fannst ég loksins vera að koma til ..

en eins og hann sagði þá verður heilsan að vera í fyrirrúmi og núna finn ég að ég er engan veginn í standi til að hlaupa og það er lítill tími til stefnu .. þannig að ég er bara ógeðslega svekkt og leið .. :(  ...

En já . ég blogga betur síðar .. og ef einhver á einhver ráð sem fá mann til að sofna auðveldlega og sofa vel  þá má sá hinn sami endilega séra þeim ...

læt heyra í mér ..

Íris danmerkurfari

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.08.2008 12:57:13 / irisanna

Helgin og það sem er framundan

Jæjja .. þá styttist í það ..

Én já .. byrjum á byrjuninni .. helgin var klikkuð .. ótrúlega gaman í eyjum og þvílíka stemningu fynnur maður hvergi annarsstaðar held ég bara :D :D

við komumst heim í gær með flugi frá bakka .. ástandið var s.s ekki bjart á tímabili en það rættist svo úr veðrinu svo það var flogið .. ég hefði satt að segja ekki verið til í að gista aðra nótt .. allt orðið svo blautt og sóðalegt þarna .. en þetta var samt ótrúlega gaman .. hitti frjálsíþróttafólkið hjá pabba steinþórs og þar var hann með nintendó ví partý og bara hitting sem var mjög skemmtilegur en annars var ég bara mikið með MH-ingunum mínum og svona hinum og þessum bara  ... enda nánast allir sem ég þekki í eyjum :D :D

En já .. það var mjög skemmtilega vandræðalegt að skokka með Arndísi úr dalnum á föstudeginum . .við tókum s.s skokk fyrir .. ja eða um hádegisbilið og fólki fannst það mjöög skondnin sjón ;)

en hérna .. ja´. .framundan eru spennandi tímar .. mjög mikið að gera reyndar en ég er s.s að fara að flytja til Sönderborg í danmörku í fjóra mánuði þann 13. ágúst en fram að því er sko nóg að gera .. fyrir utan allt sem maður þarf að redda og taka til og svona .. þá er s.s 10 ára brúðkaupsafmæli hjá mömmu á föstudaginn.. riverrafting með krökkkunum á laugardaginn og já .. svo fer ég bara á miðvikudeginum eftir helgina ! :D :D alltof stutt í þetta ..

ég var einmitt að átta mig á því fyrir helgi að ég sæi þjálfarann minn ekkert afur áður en ég fer út því hann fór s.s með ásdísi á ólympíuleikana í gær .. þannig að ég sé hann ekkert fyrr en rétt fyrir jólin :S ómægod.. ég veit ekki hverning það verður að skipta svona rækilega um rútínu .. það hefur einhvernveginn alltaf verið skóli- æfing-læra- sofa .. eða vinna-æfing-eð-sofa.. og nú verður það e-ð allt annað og ég á eftir að sakkna allra allveg svakalega held ég .. en þetta verður rosalega gaman held ég ..

var búinn að segja e-ð frá honum en fyrir áhugasama er þetta linkurinn www.ihs.dk
ekkert smá cósý staður .. skógur og strönd og e-ð svona .. og rétt við landamæri þýskalands .. en já .. nóg um þetta .. ég hef eiginlega ekki tíma í að verða spennt núna .. ekki fyrr en ég er tilbúin að fara .. finnst alltof stutt í þetta og of mikið sem á efitr að gera ..

en hérna já .. svo er það NM helgina eftir að ég fer út .. ég fer s.s út 13 . í skólann og svo aftur þaðan til noregs að keppa á föstudeginum og verð til sunnudags .. þannig að eg missi af svona welcoming hitting á fostudeginum en það verður geggjað á NM líka .. hlakka mikið til að prófa 2000m hindrunarhlaup í fyrsta sinn .. og svo verður það 1500 líka .. :)

en ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni ..

vonandi hitti ég ykkur sem flest áður en ég fer út

Íris Anna

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.07.2008 22:44:43 / irisanna

ég er snillingur!

hæ gott fólk .. kominn tími á smá up-date..

HM fór eins og það fór .. Svenni ákvað að klára ekki .. stangirnar komu ekki og svo var ekki að ganga eins og hann hefði viljað :( en Helgu minni gekk mjög vel og var rétt við bætingu :D :D :haha:

Ég var síðan svo sniðug að láta ræna af mér myndavélinni minni .. en það gerðist s.s þannig að taskan mín var á upphitunarvellinum þegar ég var að taka æfingu,, svo þegar ég kom að henni var búið að færa hana til vegna rigningar og taka veskið úr henni .. en í því voru s.s kortin mín, myndavélin mín og pólsku peningarnir mínir .. einhver 6000kall held ég .. ég tilkynnti og stuttu seinna fannst s.s veskið og kortin en hitt var horfið úr töskunni :( :( allar myndirnar frá hm og bara fullt af öðru og svo náttúrulega gat ég ekki notað myndavél það sem eftir var ferðarinnar .. mjög svekkjandi ..

Man ekki allt sem er búið að koma fyrir mig síðan . .en ég fór jú í moll með helgu í bol og ákvað að fara úr honum og týndi honum einhvernveginn í mollinu ..

Svo á ródos týndi ég 50 evru seðli .. ekki spyrja hvernig .. ókey ,. .eg fór s.s út með hliðarveski og vissi að ég yrði rænd eða myndi týna því svo ég setti seðilinn inn á brjóstarhaldarann en restin var í veskinu .. fullt  af smádóti og seðlar sem ég geymdi fyrir aðra .. og viti menn það eina sem týndist var þessi blessaði 50 evru seðill sem ég ætlaði að passa svo vel .. og jú peysan mín .. svört .. hún hvarf líka .. :S já .. ég sagði að ég væri snillingur ..

en þetta er ekki allveg búið .. ég var s.s á leiðinni heim frá ródos .. og ég kom ekki öllu dótinu í töskuna án þess að vera með yfirvigt svo ég pakkaði svörtu buxunum, brúnu buxunum, gallastuttbuxum, gallapilsi, 2 nýjum  bolum og einum nýjum kjól, báðum beltunum mínum, svörtum og hvítum hlýrabolum og toppum og stuttu tightsbuxunum og fullt af bolum og einhverju dóti í bakpoka sem ég ætlaði að taka í handfarangri og viti menn .. í fríhöfninni heima átta ég mig á því að bakpokinn er ekki með mér lengur .. ómerktur annaðhvort á flugvellinum í ródos eða ég hef haft rænu á að taka hann í vélina .. en ég man ekki eftir að hafa verið með hann í vélinni .. þannig að það er eiginega ekki sjens á að ég fái hann aftur :S ... já ég veit ég er óóótrúúúleeeeg ... þetta er eiginlega orðið hálf fyndið hvað ég er seinheppin og kærulaus .. þarf virkilega að fara að pæla í hvar ég legg hlutina frá mér og svona .. er að vinna í þessu .. en ef þið sjáið mig lítið klædda á næstu dögum þá vitið þið ástæðuna ;) ;)

já ég man ekki eftir meiri seinheppni í augnablikinu ..en ef ég horfi á björtu hliðarnar er ekki mikið eftir sem ég gæti týnt .. jú Ipodinn .. og já svo líklega týni ég bara sjálfri mér næst ;) en ég gerði pottþétt eitthvað fleira sniðugt þarna úti en það kemur bara í næstu færslum ef það er e-ð frásögu færandi ..

nenni ekki að hafa mörg orð um ferðina .. en ferðalag mitt frá póllandi til ródos hófst s.s um 16:30 þann 13. júlí og ég var komin á hótelið um 5 um morguninn 14. ekkert mega flókið ferðalag en nóg af bið finnst manni þegar maður er svona einn og geðveikt spenntur að komast á áfangastað .. birjaði á að bíða eftir bíl á lestarstöðina í póllandi, beið svo eftir lestinni í einhvern tíma og svo í lestinni í svona 2-3 tíma.. þá beið ég eftir taxa á flugvöll, bið í taxa á flugvöll, bið á flugvelli í 1-2 tíma eftir innrituninni, bið í tvo tíma eftir innritun, smá bið í vél og svo bið í fluginu sjálfu .. já .. nóg af bið ;) .. það er s.s skemmtilegra að ferðast með einhverjum .. en þetta var ekkert það lengi að líða .. ég nýtti tíman vel og fór hamförum í að leggja kapla .. við erum að tala um að ég hætti ekki fyrr en allir kaplar sem ég kann höfðu gengið upp .. miðað við mína kapalgetu eru hlutfölll heppnaðra kapla ekki meiri en 1/200 eða eitthvað svo ég lagði allveg annsi marga kapla þennan dag ;) :HAHA:

en ég komst að lokum á hótelið .. eftir að bílstjórinn hafði skutlað mér á vitlaust hótel og ég var búin að fara yfir allan gestalistann með hótelstjóranum án þess að finna nokkurn af krökkunum á skrá .. og hann skutlaði mér sem sagt á hitt hótelið sem var reyndar stutt frá og hét nánast sama nafni  ;) gaman af því ..

strax morguninn eftir var farið í dagsferð til Tyrklands ,, daginn eftir var það dagsferð til grísku eyjunnar symí og svo var miðvikudagurinn svona fyrsti tjilldagurinn á sundlaugarbakkanum .. á fimmtudaginn fóru margir í köfun en ég ákvað að skippa því og á föstudeginum fórum við svo flestöll í waterpark sem er svona vatnsleikjagarður ..

en þar sem ég er að sofna þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra í bili .. en það var s.s mjög gaman bæði á póllandi og á ródos :haha: 

góðar stundir
Íris Seinheppna og kærulausa...


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.07.2008 12:21:15 / irisanna

smá frá HM ..

jæjja.. þetta fór nú ekki alveg eing og ég hafði ætlað .. ég hljóp s.s 3000m hindrunina á HM í morgun .. hljóp af stað og bara með hópnum en samt úti á annari braut svona fyrsta hringinn .. svo fórum við allar í klessu yfir fyrstu vatsgrifjuna .. og ég stökk á vitlausum fæti og lenti ekki vel og ég hitti eiginlega bara ekki á eina einustu vatnsgrifju í hlaupinu ... en annar hringurinn var síðan svoldið of hraður sem gæti hafa tekið e-ð úr mér en svo svona var eg eitthvað samferða einni gellu og hljóp frekar rykkjótt og svona .. æja bara ekki allveg að hitta á það í dag.. ég var einhvernveginn ekki allveg komin í gírinn fyrir hlaupið og það er frekar óþæginlegt .. var einhvernveginn engan veginn nógu einbeitt.. bara ekki minn dagur .. en ef ég horfi á björtu hliðarnar var þetta næstbesti tíminn minn .. en ég á nú ekki marga í greininni .. þannig að ég er ekki nógu sátt .. en ég veit ég á mikið inni í þessari grein og ætla að gera miklu betur .. bara leiðinlegt að það gat ekki gerst á þessu móti því ég hefði viljað standa mig miklu betur .... 

En nóg af væli .. 

Við s.s. fórum út á sunnudagsmorgun og ferðuðums leengi leengi .. millilentum í munchen og svo þegar við vorum komin í flugvélina til póllands (sem var mjöög lítil og ómerkileg e-ð) þurftum við að byrja á því að bíða eftir nokkrum farþegum í 30 mín ..en það var ekkert mál .. svo komum við á flugvöllinn í Poznan .. þá kom í ljós að stangirnar hans Svenna höfðu ekki verið með í för .. og ekki vitað hvort þær væru í keflavík eða þýskalandi (eða bara einhversstaðar annarsstaðar) og það var allveg klukkutíma vesen í kringum það ..eða meira .. og svo þegar við komum út .. þá þurfti rútan okkar til Bydsgoszcz og bíða í hvað einhverja 2 tíma eða e-ð eftir öðrum keppendum .. :Þ mikið gaman .. 

það endaði nú með því að rútan fór af stað .. og við keyrðum í e-a þrjá tíma eða e-ð og byrjuðum á því að skutla einhverjum liðum á hótelið sitt áður en við fórum á stúdentagarðana sem við gistum s.s á :haha: .. ohh það var fellega fínt að vera loksins komin .. en því miður var ekki nóg af A gistiaðstöðu svo við íslendingarnir vorum látin í B..þannig að þegar við komum þá var kvöldmaturinn lokaður .. komum um 22 leytið .. og við létum okkur nú hafa það en lykillinn á herbergið okkar helgu virkaði s.s ekki .. og við vorum í svona 10 mínútur að reyna að komast inn og aðrar tíu að horfa á gaurinn í lobbíinu reyna að komast inn ;) og svo endaði á því að við vorum settar í e-ð herbergi á annarri hæð .. og alltílagi með það .. fórum í krúttlegt herbergi þar sem við deilum klosetti og sturtu með 3 öðrum hebergjum .. en það var engin í þeim þegar við komum .. við helga háttuðum bara og fórum að sofa en vökknuðum svona um 2 leytið við allveg þvílík læti eins ogeinhver væri að brjótast inn .. og svo var hurðinn inn til okkar opnuð og einhverjir þrír kallar stóðu fyrir utan .. vá hvað okkur brá :D þá var þetta húsvörðurinn  með einhverja tvo sjálfboðaliða sem áttu að vera með okkur í herbergi ..s.s í A klefanum en við vorum í B.. alltílagi með það .. fórumbara aftur að sofa .. og svo um morguninn voru þeir farnir ... og já .. vel á minnst .. þetta eru s.s þannig herbergi .. að það er ein útihurð og innan hennar er sameiginlegur vaskur og tvö gistiherbergi með tveimur rúmum í hvoru . . og ein hurð inn á sameiginlega sturtu og klósett sem þessi tvö gistiherbergi deila með herbergi sem hefur baðhurð út frá sturtunni og klósettinu sín megin frá .. æji þið fattið .. og við læstum öllu þegar við fórum að sof a.. en þegar við komum var sem sagt búið að taka allt dótið okkar sem var á vaskinum fyrir framan gistiherbergin .. og það var s.s snyrtibuddan hennar helgu, tannbustinn minn og tannkremið, nálarnar og tannþráðurinn og sápurnar okkar tvær og klósettrúllurnar .. :S og við fórum niður og konan skildi náttúrulega ekki stakt orð í ensku .. þannig að við erum búnar að vera í látbragðleik í allan dag og höldum að fólkið skilji um hvað málið snýst .. erum allaveg búnar að vera að ellta fólk í leit að gellunni sem á að hafa þrifið herbergið en hún er s.s ný og enginn veit vhar hún er .. hhehe .. og svo var okkur gefin ný sápa og pappír og áttum að hitta allar skúringakonurnar í e-u ákveðnu herbergi klukkan 14.. og viti menn .. við eigum svo að koma aftur kl 15 og þá verða þau komin með túlk handa okkur :haha: þetta er svoldið fyndið allt e-ð .. vona að helga fái dótið sitt samt aftur.. ég er ekkert illa haldin komin með nýjan tannbursta og tannkrem ... en málinu er ekki lokið ;) heheh

ókey við fórum ekkert alltof bjartsýnar í morgunmatinn í gær .. en hann var samt bara fínn . eða þúveist .. miðað við hvað þetta leit illa út í byrjun .. og sv er maturinn búinn að vera fínn síðan .. þannig að það er ekkert útá hann að setja..en kannski ekki að marka mig því mér finnst allur matur góður :haha: já .. og svo s.s í gær þegar ég og helga vorum búnar að raða öllu fallega í hillur og helga með bókasafnið sitt og allan pakkann uppí hillu .. þá kom félagi okkar og sagði að við þyrftum að skipta um herbergi því annars þyrftum við að vera með stelpum frá nígeríu í herbergi . mér var svosem allveg sama .. en helga fékk að ráða og við skiptum .. og fórum aftur í herbergið sem við áttum að vera í upprunalega ...

ókey .. fórum að sofa í gær og viti menn .. vakknaði um hálffimm .. ætlaði reyndar að vakna tíu mín í .. svo það skipti ekki miklu .. en þar voru komin inn í herbergið gellan í lobbýinu sem talar enga ensku .. og svo NUDDARAR og e-ð frá ´nígeríu .. og það eru s.s nýju herbergisfélagarnir :D hahah .. þetta nær engri átt .. en ég nenni ekki að pakka aftur ..en það gæti vel verið að okkur verði hent út :P .. jæjja.. það kemur bara í ljós... 

En aftur að stöngunum .. þær eiga vonandi að koma á morgun .. á fyrri keppnisdegi en stöngin er seinni daginn .. vonum að það gangi eftir .. og já .. herbergið ´hjá strákunum lyktar eins og illa haldinn útikamar og helga fékk já ekki flugsæti í ofbókuðu vélinni okkar fyrr en einhverri gellu voru borgaðar 250 evrur fyrir að taka vél seinna um kvöldið :haha: smá stress í smá stund .. þetta byrjaði í 50 evrum .. en já .. það gekk allavega fyrir rest... 

hmm .. já .. og svo virkuðu ekki innstungurnar í herberginu hjá strákunum .. en það er s.s ein á klósettinu sem virkar svo svenni getur verið með tölvuna sína þar í sambandi ... hehe ... sá var illa ekki sáttur þegar við mættum á staðinn .. hann er svona að sætta sig við aðstæðurnar núna .. en já .. s.s hann var ekki sáttur .. 

já .. ég veit ekki hvað ég á að segja . slatti búið að gerast á þessum tveimur dögum .. og maður er bara spenntur að sjá hvað mun gerast á næstu dögum :D :D

 

» 8 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 20:40:50 / irisanna

Íslandsmet og lágmark á HM :D

Sælt veri fólkið :D

nú er maður nýlega skriðinn heim af Evrópubikarnum sem var að þessu sinni haldinn í Tallin í Eistlandi .. Það var mikið um frábara árangra hjá Íslendingunum og mig langar sérstaklega að nefna Ólympíulágmark Ásdísar Hjálmsdóttur í spjótkasti og sigur þóreyjar Eddu og Begga í sínum greinum en þau munu einnig keppa á ól í peking núna í ágúst :D :D og svo var hún arndís mín að standa sig ekkert smá vel í 1500 og 3000 m hlaupum en hun bætti sig úr 10;36 úti í 9;52  í 3000m hlaupi (sem er ekkert smá flott bæting og náði lágmarki á NM 20-22 ára núna í sept) og svo hljóp hún 1500m á góðri bætingu á 4,38 en hún átti 4,46 úti ! ekkert smá flott hjá henni .. :haha:

en svona á heildina litið gekk Íslendingunum bara mjög vel á þessu móti en ég held að úrslitin sé að finna á www.fri.is og já .. ég s.s náði að bæta íslandsmetið aftur í 3000m hindruninni og náði þar með lágmarki á heimsmeistaramót unglinga 19 ára og yngri sem fram fer í póllandi eftir 14 daga ! :haha: ... já ég þarf s.s einhvernveginn að cancella eða seinka útskriftarferðinni .. en við ætluðum út 5. júlí og Hm er 8.-13. júlí .. næ kannski að fara og vera með þeim í nokkra daga í Rohdos.

En já .. það var s.s mjög gaman úti og góður andi í íslenska liðinu og það verður bara gaman að sjá hvernig krakkarnir standa sig á mótunum í sumar og auðvitað hvernig ólimpíuförunum okkar mun ganga í peking :haha:
en ég er allveg að deyja úr þreytu þannig að ég nenni ekki að hafa þetta lengra í bili ..
svaf síðast á laugardagskvöldið .. fyrir utan ´smá dorm í fluginu á leiðinni frá köben til íslands ..

En eigið góða jónsmessunótt og ég læt heyra í mér ..

Íris Anna :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2008 12:46:30 / irisanna

Tími kominn á blogg

ég er ekki búin að vera sú duglegasta að blogga undanfarið en ætla að reyna að bæta smá úr því ..

Ég hef bara verið mjög róleg síðan ég byrjaði að vinna.. svo róandi að vera í lífeyrissjóð að skrá inn skilagreinar frá 8-16 :haha:.. engin heimavinna og bara æfing þegar mér hentar (amk á meðan Stebbi þjálfari hefur verið í útlöndum) .. ;)  

Ég er s.s búin að fara í nokkrar útskriftarveislur frá síðasta bloggi og keppa fjórum sinnum .. þar af 2 í 3000m hindrun og 2 í 1500m´. Í fyrra 3000m hindrun hljóp ég á 11,23,8? en ísl metið var 11,23,14 :) svoldið nálægt í 3000m hlaupi ;) en seinna skiptið var góð bæting 11.14 og þar með íslandsmet :haha: .. gaman af því
og 1500 metra tímarnir eru ekkert til að tala um en ég bætti mig allavega frá hlaupi til hlaups og fílaði mig mjög vel í báðum þá einkum seinna hlaupinu .. en feikinóg um frjálsar . .af mér allavega .. en mig langar að minnast á að vinir mínir Helga Margrét Þorsteinsdóttir (Ármanni) og Sveinn Elías Elíasson (Fjölni) urðu um síðustu helgi Norðurlandameistarar í fjölþrautum :haha: óska þeim innilega til hamingju .. ekkert smá flottur árangur hjá þeim og þau hafa bæði tryggt sér þáttökurétt á heimsmeistaramóti unglina sem fer fram í júlí 8-13 minnir mig .. :haha:

En það eru s.s mjög skemmtilegir tímar framundan hjá mér.. þessi helgi verður bara róleg en helgina eftir það fer ég til tallin að keppa á Evrópubikar og svo helgina eftir það er bara vonandi útilega eða rafting :D og helgina eftir það er bikar/rohdos 8).. :haha: ég næ s.s fyrri degi bikar og síðan er það bara að öllum líkindum 2ja vikna ferð til Rohdos þar sem flugið mitt heim eftir viku var fellt niður :S .. :d en það verður vonandi bara alltí lagi að vera í 2.. full langt en það verða bara stífar æfingar seinni vikuna og ég missi ekki af neinu móti :) .. en helgina eftir rohdos er íslandsmeistaramótið og helgina eftir það eru það eyjar :haha:  ekkert smá spennt fyrir þeirri ferð .. held það verði geggjuð stemning þar sem ALLIR eru að fara .. eða nánast allir.. :haha: 8)

og síðan er stefnan sett á lýðháskóla í haust .. :d frá ágúst-des.. þar sem ég útskrifaðist á 3 árum ákvað ég að byrja ekki allveg strax í háskóla og taka ár í eitthvað skemmtilegt og þroskandi og vona að lýðháskóli í DK sé málið :haha: .. það verður allvega gaman að prófa að vera í nýju landi og geta einbeitt sér að íþróttum og að kynnast nýju fólki í skemmtilegu umhverfi .. :haha: .. en ég er ekki allveg búin að púsla saman skólanum og NM unglinga (ef ég verð valin á það) en það fer fram í noregi 16 ágúst en þá á ég s.s að vera farin út .. en ég vona að ég geit þá bara farið frá DK til noregs .. það er styttra ferðalag líka :D 

þetta er lýðháskólinn :haha:

Og svo er ég bara ekki búin að plana neitt lengra en það .. en þetta er allavega frekar þéttbókað sumar og mjög skemmtilegt .. :haha: en ég á líka eftir að squeeza inn einni eða tveimur útilegum ... og jafnvel einni ferð norður á Húsavík ;) .. vá .. ég þyrfti fleiri helgar í þetta sumar ! ekkert smá mikið sem maður ætlar að gera á sumrin alltaf :haha:

En allavega .. þetta eru svona drög að mínum tímaseðli næstu mánuðina ;)

Íris Anna


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 12:57:37 / irisanna

Styttist í útskrift :D :D

Jæjja .. þá fer að styttast í útskriftina ..

Dáldið pakkað að gera næstu daga .. í dag er það æfing beint eftir vinnu
og svo bónus fyrir lokun með mömmu .. kaupa í veisluna :D svo bara heim
taka til kannski og eitthvað svoleiðis...svo þarf ég að gera skriflega umsókn í einn líðháskóla .. búin að sækja um í tvo nú þegar .. gaman að sjá hvað kemur út úr því.

Á morgun er það tannlæknir 10:30, vinna, einkunnir einhverntíman, prófsýningar einhverntíman, halda áfram að vinna.. svo æfing eftir vinnu og svo kringlan að kaupa útskriftargjafir og svoleiðis.. og skipta láta minnka ólina á úri sem mamma og fiddi gáfu mér í útskriftargjöf :D

svo á föst þarf ég að fara að baka og eitthvað svoleiðis eftir vinnu.. og útskriftaræfingu klukkan sex. . svo fer ég í útskriftarveislu til Arndísar sætu :D og já .. það verður lítið annað gert þann daginn..

svo á laugardaginn er það bara útskriftin :haha: spennandi ..

missum reyndar af boðhlaupsmótinum í borganesi :( .. en maður er svona að reyna að keppa sig upp í eitthvað form . . hljóp 3000m hindrun 16. maí og munaði litlu að það hefði orðið Ísandsmet :D .. hljóp á 11,23,8? en metið er 11,23,14. . ;) bæti það bara í sumar
svo hljóp ég 1500m í gær kl. 21,45 ;) með arndísi þar sem ég var bara frekar slöpp og arndís bætti sig :) góð æfing engu að síður ..

en já .. segi þetta gott í bili ..

Íris Anna

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 16:29:59 / irisanna

Á döfinni ...

Stefni á að fara til Húsavíkur um helgina :D :D ekkert smá spennt .. fyrir utan það að veðrið fyrir norðan er ekkert spes .. bara slydda og vesen .. en ég hlakka samt til að komast til ömmu í sveitasæluna  :haha:

hljóp í 1. maí hlaupinu áðan .. ekkert spes hlaup .. fílaði mig aldrei og rúllaði bara létt í mark þannig séð .. 39:40 held ég .. og ég stefndi allavega undir 40 svo það hafðist þó ;) borgar sig ekkert að setja ser of háleit markmið .. ég var líka mjöög þreytt enda í miklu magni og ekkert búin að hvíla fyrir hlaupið ..

Fyrir áhugasama þá tók tugþrautamaðurinn en fyrrum langhlauparinn Sveinn Elías einnig þátt í 1,8km hlaupinu og sigraði það með glæsibrag.. kom svoldið á óvart að hann skildi ákveða að skella sér í hlaupið en hann hefur þetta allveg í sér ;) og já .. svo er nýjasta slúðrið víst að hann sé búinn að missa bílprófið ... en það hefur s.s ekki gerst (ennþá) .. bara svona svo það sé á hreinu.. ;)

en það er svona mishresst þetta fjölnislið .. virðist vera einhver flensa og þreyta í gangi .. við langhlaupararnir erum svoldið að þreytast í magninu en ekkert alvarlegt, þá er Íris þórs búin að vera eitthvað slöpp (e.t.v. ofþjálfun) og hefur ekki mætt nú í tvær vikur og vona ég innilega að hún fari að ná sér og já Stefanía líka búin að vera eitthvað þreytt og slöpp en hún er öll að koma til og kemur sterk inn á næstu dögum .. já .. kannski segja frá því að Ingvar haukur hljóp einnig í 1. maí hlaupinu 10km og var þar í öðru sæti og náði markmiðinu sínu sem var að komast undir 37 mínúturnar :haha: til lukku með það Ingvar .. kannski prógrammið hennar natalíu sé að skila sér ...en hann er búinn að vera á því í einhvern smá tíma en þar æfir hann öðruvísi og miðast allt við púlsinn ;) ..

jæjja .. nóg af fréttum úr fjölnisliðinu ..

og að prófunum .. ég fer s.s bara í tvö lokapróf og stefni á að taka þau bæði í næstu viku ;) svona fyrir þá sem hafa áhuga ;) .. efnafr á miðvikudaginn og stærðfræði á fimmtudag .. æj það er bara fínt að rumpa þessu af .. (stæ prófið er s.s sett á 16 en hægt að taka það með öldungadeild á fimmtud)
og svo er það bara vinnan í sumar ... (í lífeyrissjóðnum)

já það er svosem ekkert meira planað hjá mér í bili nema náttúrulega ferð til Rohdos í júlí ;) .. en svo eru jú úrvalshópsæfingabúðir um helgina sem ég því miður missi af ef ég fer norður ..

jú svo er auðvitað útskriftin þann 24. maí .. úff finnst menntaskólagangan bara hafa farið framhjá mér einhvernveginn .. alltof fljótt að líða .. reyndar voru þetta bara þrjú ár .. en samt .. mjög fljót að líða ..

æj ég hef eiginlega ekkert að segja þannig séð .. þurfti bara smá pásu frá lærdómnum .. en allavega .. þið hin .. endilega njótið góða veðrissins og farið í sund, fáið ykkur ís og grillið svo hammara eða eitthvað :haha: .. það er svo sannalega komið sumar hérna á suðurlandinu ;) :haha:

Íris Anna ..þreytt en í sólskinsskapi .:haha:;):haha:.



» 4 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 16:09:31 / irisanna

Vandræðalegheitin að ná hámarki ..

Nú er stutt eftir að skólanum og mikið að gera  ..

ég veit ekki hvort það er þessvegna eða af einhverjum öðrum ástæðum sem mér hefur tekist að vera bara óendanlega vandræðalega undanfarna daga ...

þetta byrjaði allt í kosningavikunni þegar ég ákvað að vera ótrúlega almenninleg og segja stelpu (sem við skulum kalla X) sem var að að tala við stelpu Y að hún væri með súkkulaði á vörinni/munnvikinu og mér fannst skrítið af Y að láta X ekki vita þar sem þær vinkonurnar voru að spjalla og ég þekkti hvoruga. . .og já .. X var b.t.w. að bjóða sig fram í stórfélagið .. og já .. ég sem sagt benti henni vingjarnlega á súkkulaðið ... sem reyndist síðan vera skurður eða eitthvað sár eða allavega eitthvað allt annað en súkkulaði :S .. já segið það bara .. VANDRÆÐALEGT! ;)

og já .. svo þegar ég var að fara heim eftir langan skóladag var mér litið yfir bílastæðið .. DAMN ég hafði lagt á þann enda bílastæðissins sem var LEEENGST frá dyrunum .. svo ég dreif mig á að bílnum og stakk lyklinum í skrána og viti menn .. þetta var bara ekki minn silfurlitaði yarist heldur var hann á HIIINUM enda bílastæðisins .. svo ég tók bara "the walk of shame" á þetta  ... frekar leim :haha:

og já . .svo var ég líka að fara að hita matinn minn um daginn .. var nátturulega með tvær töskur og eitthvað svona vesen . .þannig að ég vippaði töskunni minni á endann á borðinu sem örbylgjuofninn er á ... og viti menn .. hún´rúllaði af borðinu og beint ofan í massíft stórra og djúpa álruslatunnu með tilheyrandi látum .. svo ég þurfti að kafa ofaní tunnuna og ná í töskuna .. og þetta er b.t.w. í miðri sjoppuröðinni sem er alltaf mjög löng og fjölmenn .. svo enn og aftur leið mér hálf vandræðalega ;) .. :lol:

hehe .. ég get haldið endalaust áfram .. en ég er að spá í að segja þetta gott í bili .. þegar næsta vika er búin er svoo  lítið eftir að skólanum að það hálfa væri .. eiginlega ekki neitt .. bara klára þessi lokaverkefni í öllu .. og prófin í þjó og þá eru það bara 2 próf í próftöflu :haha: reynar 7. og 16. maí .. á síðasta prófadeginum .. en ég fer þá bara að vinna í millitíðinni eða eitthvað ..

en ég er að spá í að skella mér í sund krökkunum .. svo ég hef þetta ekki lengra að sinni ..

adíós ..
Íris Anna

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Heimsóknir
Í dag:  24  Alls: 80976
Dagsetning
9. febrúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  24  Alls: 80976
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti